|
|
14.10.2007 20:21:16 / blogg4ever
Ég er flutt !!!!!!!!!!!!!!!!!!! http://www.fjola.blog.is/blog/fjola/ Kíkið við !!!! Kv Fjóla flutta.
»
14.10.2007 09:50:11 / blogg4ever
Að sitja á sunnudagsmorgni í náttsloppnum með kaffibolla og rúnstykki, lesa blöðin og flakka um bloggsíður er mikil gæðastund að mér finnst. Rakst inn á bloggið hans Bögga frá Silfurtúni og hafði gaman að, ætíð verið mikill penni og orðheppinn náungi eins og sagt er. Stöddarar hafa jú ætíð átt miklar frásagnahetjur. Helgin hefur verið róleg hjá mér að mestu fram að þessu, kenndi laugardagstíma fyrir samkennara minn, vel mætt og gaman. Við hjónin fórum út að borða á Grillhúsið í Tryggvagötu í gærkvöldi og fengum þar einn mesta risaskammt sem diskar hafa skartað fyrir okkar augu, södd fórum við frá klukkustund síðar og varla var hægt að sjá að hreyft hefði verið við herlegheitunum. Frábær matur og frábær þjónusta Við rúntuðum um borgina södd og sæl og heimsóttum síðan Jonna stóra bró og Guðnýju og sátum til miðnættis hjá þeim í notalegheitum það er að segja eftir að bró tók kettina sína og lokaði þá inni í herbergi, ég var gjörsamlega að verða vitstola á að hafa þessa heimilismeðlimi í löppunum á mér og víðar. Hef verið að hugsa um að flytja á mbl blog, sé til.. Dagurinn í dag er óráðinn....................
»
13.10.2007 13:17:58 / blogg4ever
»
12.10.2007 11:35:18 / blogg4ever
Mikið var ljúft að þurfa ekki að vakna eldsnemma í bítið, fór ekki á fætur fyrr en um kl 11.00. Nokkur skemmtileg símtöl bárust með kaffibollanum. Hef hugsað mér að snúast í ýmsu í dag en vinnuálag er ekki til staðar hjá konunni í dag, kenni bara einn tíma seinnipart. Borgarmálin eru jú á allra vörum eins og gefur að skilja en það er nú svo að spilling er til hér eins og annars staðar og seint verður komist hjá því. Mér finnst ekkert spennandi að fylgjast með þessu litrófi nema þá með öðru auga, sandkassaleikir eiga ekki við mig. Nóg um það. Kíkið á heimasíðurnar okkar elskurnar. www.innmark.is www.4ever.is 
Sæl að sinni ! Fjóla
»
11.10.2007 09:09:14 / blogg4ever
»
10.10.2007 12:58:35 / blogg4ever
»
09.10.2007 21:47:42 / blogg4ever
»
09.10.2007 14:26:01 / blogg4ever
Ég man nákvæmlega hvar ég var stödd er ég heyrði þær sorgarfréttir að John Lennon hefði verið myrtur. Lögin hans lifia um alla eilífð svo mikið er víst ! Ein kona sem er hjá mér í þjálfun sagði í dag svo réttilega: Hann var svo lífsnauðsynlegur heiminum. http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1295933
»
09.10.2007 08:52:13 / blogg4ever
Hæfileikar og geta Rakst á eftirfarandi og ákvað að deila því hér. Hæfileikar eru hlutir sem að við höfum öll og við höfum mikið af þeim en sjaldnast kunnum við á þá alla og er þetta fyrirbæri oft vannýtt og lítið notað. Það er frekar getan sem stjórnar því hvað við gerum og gerum ekki, ekki hæfileikarnir. Það er athyglisvert að skoða það að ef við kveikjum betur á hæfileikunum þá gerist mikið meira af góðum hlutum í lífinu . Ef að það er ekki samræmi milli hæfileika og getu þá náum við ekki árangri í því sem við erum að gera í dags daglegu lífi.
Skoðum nú sérstaklega orðið geta, en þar liggur yfirleitt hundurinn grafinn, ekki það að okkur vanti hæfileika. Við segjum oft við sjálf okkur að við getum ekki hitt og kunnum ekki þetta en það er ekki vegna þess að okkur skorti hæfileika til verksins, þarna er getan að halda okkur niðri. Vondar tilfynningar og erfiðar upplifanir gera það að verkum að getan okkar verður lítil sem engin. Við þurfum að láta getuna og hæfileikana vera samstíga en þá fara hlutirnir líka að gerast.
Það er gott að velta því fyrir sér af hverju getan sé ekki meiri hjá mér til þess að takast á við verkefni dagsins heldur en raun ber vitni í staðin fyrir að vera að úthúða sjálfum mér fyrir að kunna ekki hluti eða hafa ekki hæfileika. Þetta getuleysi svo kallaða á við um mjög marga hluti t.d. vinnuna og samskipti við annað fólk. Það er oft vegna vana að við getum ekki hluti en ekki vegna þess að okkur skorti hæfileika til. Hugsum um það að ef að við höldum áfram að gera hlutina eins og við höfum alltaf gert þá, þá halda allir hlutir áfram að vera nákvæmlega eins og þeir hafa alltaf verið.
Ef að við brjótum ekki upp vanann þá náum við aldrei getunni upp að hæfileikunum og þá njóta hæfileikarnir sín aldrei þar sem getan heldur aftur af okkur. Skoðaðu vel hvort þú ert að nota hæfileikana þína í samræmi við það sem þú hefur eða hvort þú ert að láta getuna stoppa þig í öllu á hverjum einasta degi.
»
08.10.2007 15:49:01 / blogg4ever
Vaknaði eldsnemma, já hress í morgunsárið, keyrði unglinginn minn í skólann og talsverð héla var á bílum merkilegt að fólk skuli keyra um án þess að skafa bílrúður sínar að fullu, engin hálka sem betur fer. Fór að sinna mínu fólki fram yfir hádegi í Mecca og fór síðan heim að næra mig, þvo og þetta venjulega sem til fellur, voða gaman að því öllu. Unglingar sátu strekktir yfir einhverri spennumynd á efri hæð heimilisins lungan úr deginum, en drifu sig síðan í fótbolta eftir að húsráðandi hafði hvatt til þess í um tvo tíma með hléum GAJ rúmfötin fóru af stað í auglýsingaflóruna ásamt námskeiðinu mínu sem hefst 16.október en þá er konan komin með tvö slík í gang í Mecca. Talsvert að gera hjá okkur hjónum í aloe vera dreifingu um borg og bý....man ekki hvort Ý á að vera í bíý læt hvorutveggja því fara. Seinnipart var ég með sundleikfimi fyrir Átakshópinn minn, pottur í lokin og kósý. Það er svo sem hver dagur öðrum líkur þessa dagana og frá litlu að segja, ekki finnst mér áhugavert að fjalla um fréttir blaða og sjónvarps því fáar eru gleðiefni, kanski tek ég mig þó til og viðra skoðanir mínar á einni og einni síðar. Kvöldið verður rólegt, tvö heima ég og unglingurinn með kertaljós, tölvur í sitt hvoru horni, situm stjörf við viðfangsefni okkar, erum samt búin að ræða að svokölluð gæðastund sé nauðsynleg á hverjum bæ, stefnum á eina slíka á næstu kvöldum. Kveð að sinni !     kvitta svo !!!! Jæja þá er    gjöfin í ár hér www.innmark.is ZZZZZZZZZZZZZZ
»
07.10.2007 22:17:31 / blogg4ever
»
06.10.2007 11:04:22 / blogg4ever
 1. Japanir borða mjög litla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar. 2. Frakkar borða mikla fitu og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar. 3. Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar. 4. Ítalir drekka mjög mikið af rauðvíni og fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar. 5. Þjóðverjar þamba bjór og háma í sig pylsur og þeir fá mun færri hjartaáföll en Bandaríkjamenn og Englendingar. 6. Íslendingar pulsa sig gjarnan upp, lesa ,mæta misvel í ræktina og eru FLESTIR í flottu formi eða hvað?? Niðurstaða:  Borðaðu og drekktu allt sem þig langar í. Forðastu að tala ensku. Liður 6 er trúlegast heppilegasti valkosturinn !! 
Kveðja ( ekki love  Fjóla
»
05.10.2007 21:38:32 / blogg4ever
Ég verð að segja að dagurinn í dag hafi að mestu verið slökun fyrir utan að þvo smávegis þvott, vaska upp fáein glös.....já á stundum getur slökunarlífið tekið öll völd. Kíkti í Mecca til að spjalla, æi það er svo gott að kíkja við og blabla...... Byrja með annað námskeið 16.0któber, mörgu að sinna varðandi undirbúning. Birkir minn var að hefja nýtt tímabil í fótboltanum, fór að horfa á æfingu hjá honum seinnipart, heim með stráksa í sturtu eftir boltapuð og síðan fórum við að borða hjá kínveskri vinkonu okkar sem var að opna veitingarstaðinn Tían. Maturinn fínn og gaman að spjalla við skemmtilega konu. Heim í sófa, náttföt, kertaljós og kósý. Í hádeginu á morgen ætlum við í ÁTAKSHÓPNUM mínum að borða saman, spjalla og skoða sett markmið. Já já svona var minn dagur að mestu, slakur og fínn !  
»
04.10.2007 08:56:46 / blogg4ever
Góðan dag ! Sit hér með kaffibollann minn sæl og glöð eftir mikið puð með morgunhóp Mecca í bítið, rigningin hamast á eldhúsglugganum og trén mín fella laufblöðin sátt er virðist. Dagurinn gengur út á vinnu, þrif, útréttingar og fleira eins og hjá flestum. Ætla að skella mér í nudd í dag ef laus tími finnst, það er hreinlega æðislegt að liggja eins og skata og njóta þess að láta aðra um að mýkja upp stífa vöðva. Mæli sko með henni Allý ( frá Borgargarði ) sem er nuddari í Mecca. Er að hugsa um að kaupa mér rósir í dag, já geri það gjarnan til að gleðja eigið sjálf. Skrepp nú frá en hver veit nema bloggputtar verði fimari hér síðar Hafið það gott ! 
»
03.10.2007 13:59:32 / blogg4ever
Ég hef verið heldur blogglöt að undanförnu, dett annað slagið í tölvuleti. Hvað um það þá er ég að pikkast smá hér núna. Vinnan mín er´skemmtileg að vanda og gaman að upplifa framfarir þeirra sem maður er að þjálfa. Tókum rosalega skemmtilega æfingu saman seinnipart í gær Meccahópurinn, sex konur sem stefnum hátt og æfum einu sinni í viku saman og höfum gaman, allar að æfa aðra daga í sitt hvoru horni. Átakshópurinn minn er duglegur að vinna að settum markmiðum, konur á öllum aldri sem ná sérstaklega vel saman og gera lífið skemmtilegra. Við hjónin bregðum okkur til Keflavíkur í kvöld til að kynna aloe vera en vinsældir aloe vera eru hátt stígandi sem er gleðilegt.  Sæl að sinni
Fjóla 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|